Á milli mála
Milli mála – Tímarit um erlend tungumál og menningu er alþjóðlegt veftímarit í opnu aðgengi gefið út af Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum (SVF) við Háskóla Íslands. Milli mála birtir ritrýndar fræðigreinar á sviði erlendra tungumála, bókmennta, málvísinda, málakennslu og þýðingafræði en einnig birtir tímaritið þýðingar, viðtöl, ritdóma eða bókakynningar eftir því sem rúm leyfir hverju sinni.
Stutt
Rannsóknastofa í smásögum og styttri textum er vettvangur fyrir rannsóknir, þýðingar og miðlun á smásögum og styttri textum fyrir fræðimenn og þýðendur úr ólíkum áttum. Með styttri textum er meðal annars átt við örsögur, brot, exempla, anekdótur, ævintýri, þjóðsögur, fabúlur, strengleika/stuttar ljóðsögur og esseyjur. Sjá nánar.