Japanshátíð í 20 ár
Árleg Japanshátíð við Háskóla Íslands verður haldin í tuttugasta sinn í Veröld - húsi Vigdísar laugardaginn 27. janúar næstkomandi kl. 13:00-17:00. Hátíðin er öllum opin og gefst gestum kostur á að kynnast japanskri menningu, en í ár verður m.a. boðið upp á fjölbreyttar sýningar, smiðjur, föndurhorn og kynningarbása. Hápunktur hátíðarinnar í ár er sýning á vegum KROM Kendama hópsins, en þeir sýna listir sínar og þrautir með japanska viðarleikfanginu kendama.
Gestir geta einnig tekið þátt í manga-teiknismiðju sem haldin verður í samstarfi við Íslenska myndasögusamfélagið og fengið kennslu í tveimur vinsælum borðspilum shogi og go, en bæði eiga sér aldagamla sögu. Sendiherra Japans á Íslandi, Ryotaro Suzuki, sem er mikill áhugamaður um shogi sér um kennsluna, en spilið er einnig þekkt sem „japönsk skák”. Íslenska Go Félagið býður gestum og gangandi að spreyta sig á go, sem á rætur að rekja til Austur-Asíu og er almennt talið eitt elsta borðspil í heimi.
Það eru nemendur og kennarar í japönsku máli og menningu við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands sem skipuleggja hátíðina í samstarfi við Sendiráð Japans á Íslandi og fjölmörg félagasamtök. Helstu styrktaraðilar hátíðarinnar eru Háskóli Íslands og The Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation.
Dagskrá:
Húsið opnar kl. 13:00
Stakir viðburðir:
- 13:15-13:30 Opnunarávörp
- 13:40-14:00 Aikido-sýning
- 14:00-15:40 Kvikmyndasýning, “Every Day A Good Day”
- 14:00-15:00 Shogi-örnámskeið með Suzuki sendiherra
- 14:00-15:00 Manga-teiknismiðja í boði Íslenska Myndasögusamfélagsins
- 15:00-16:00 Go örnámskeið á vegum Íslenska Go Félagsins
- 15:30-15:50 Karate-sýning
- 16:00-17:00 Kendama-sýning
Í gangi 13:00-17:00
- Go-spilasmiðja
- Shogi-spilasmiðja
- Origami föndurhorn
- Japönsk skriftar- og teiknismiðja
- Leikhorn með japönskum leikföngum
- Kynningarbásar
Sjá einnig Facebook-síðu hátíðarinnar.
Smellið hér til að hlusta á viðtal við Kristínu Ingvarsdóttur, lektor í japönskum fræðum við Mála- og menningardeild HÍ, um námsgreinina og Japanshátíðina.