Header Paragraph
Umræða um Skytturnar þrjár
Franska sendiráðið og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum bjóða til umræðu um sígildu skáldsöguna Skytturnar þrjár eftir Alexandre Dumas í Veröld - húsi Vigdísar þriðjudaginn 23. janúar kl. 16:30. Kvikmynd byggð á bókinni er sýnd á franskri kvikmyndahátíð í Bíó Paradís 19.-28. janúar.
Toby Erkik Wikström, sérfræðingur við Hugvísindastofnun og Guðrún Kristinsdóttir, nýdoktor við Mála- og menningardeild HÍ, bæði sérfræðingar í frönskum bókmenntum sautjándu aldar, fjalla um bókina í sögulegu ljósi.
Image
