Skáldsagan Útlendingurinn eftir Albert Camus hefur verið endurútgefin í endurskoðaðri útgáfu. Útlendingurinn kom fyrst út í Frakklandi árið 1942 og er ein af þekktustu skáldsögum franskra bókmennta. Hún var gefin út í tvímála ritröð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur árið 2008 en hefur nú verið endurútgefin án frumtextans og var þýðingin endurskoðuð við þetta tækifæri.
Þýðandi er Ásdís Rósa Magnúsdóttir, prófessor í frönsku máli og bókmenntum við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands, og ritstjóri er Irma Erlingsdóttir, prófessor við sömu deild. Útgefandur eru Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Háskólaútgáfan og er verkið gefið út með styrk frá Styrktarsjóði Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur.