Útgáfuhóf: Brotin kona eftir Simone de Beauvoir
STUTT - rannsóknastofa í smásögum og styttri textum, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og franska sendiráðið bjóða til hófs í tilefni af útgáfu smásagnasafnsins Brotin kona (La Femme rompue) eftir Simone de Beauvoir í þýðingu Jórunnar Tómasdóttur (1954–2023).
Kynningin verður haldin í Auðarsal í Veröld, fimmtudaginn 10. október klukkan 17:00-18:00.
Dagskrá
Petrína Rós Karlsdóttir mun segja frá störfum Jórunnar í þágu erlendra tungumála. Jórunn var formaður STÍL, kennari og verkefnastjóri Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Ásdís R. Magnúsdóttir kynnir verkið og þýðinguna og Rebekka Þráinsdóttir les valda kafla úr sögunum þremur.
Franska sendiráðið og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur bjóða upp á léttar veitingar.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur stóð að útgáfunni í samstarfi við Háskólaútgáfuna.
Irma Erlingsdóttir, prófessor við Mála- og menningardeild HÍ, skrifar inngang og Ásdís R. Magnúsdóttir, prófessor í frönsku máli og bókmenntum við Mála- og menningardeild HÍ, ritstýrði bókinni.
Hjartanlega velkomin!
STUTT - rannsóknastofa í smásögum og styttri textum
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum
Sendiráð Frakklands á Íslandi